Skylda er að flytja eitt lag eftir tónskáld ársins
en að öðru leyti er lagaval keppenda frjálst.
Sem leiðbeinandi lagalista í Framhaldsflokki bendir
keppnin á Aðalnámskrá tónlistarskóla.
Ítrekað er að ábendingin er eingöngu leiðbeinandi.
LAGAVAL - LAGALISTAR
Í forkeppni flytja keppendur lag eftir tónskáld keppninnar ásamt ljóði EÐA aríu sem hafa verið tilgreind í umsóknarformi.
Í úrslitum flytja keppendur lag eftir tónskáld keppninnar ásamt ljóði OG aríu sem hafa verið tilgreind í umsóknarformi.
Leyfilegt er að flytja sömu verk í forkeppni og í úrslitakeppni en einnig má skrá önnur verk til flutnings og er það alfarið ákvörðun keppanda.
HVAÐA VERK ERU FLUTT
OG HVENÆR?
TÓNSKÁLD ÁRSINS
Undanfarin ár hefur VOX DOMINI valið íslenskt tónskáld sem tónskáld ársins. Við valið er horft til þess að tónskáldið hafi lagt sig eftir að semja fyrir rödd og píanó og velja keppendur eitt lag eftir viðkomandi tónskáld til flutnings í keppninni. Sérstök verðlaun eru veitt fyrir besta flutning á lagi eftir tónskáld ársins.
Tónskáld ársins 2026 er Jón Ásgeirsson.
Verk Jóns eru aðgengileg á nótnavef Tónlistarmiðstöðvar sem sjá má hér fyrir ofan og einnig er hægt að sjá lista yfir þau verk sem hægt er að velja undir ‘lagalisti - Jón Ásgeirsson’.
Jón Gunnar Ásgeirsson Skúlason (f. 11. október 1928 á Ísafirði, d. 21. nóvember 2025 í Reykjavík) er íslenskt tónskáld. Meðal þekktustu verka hans eru óperurnar Þrymskviða, Galdra-Loftur og Möttulssaga. Hann hefur líka samið mörg vinsæl sönglög eins og lagið við ljóð Halldórs Laxness, Maístjarnan.
Jón útsetti og samdi millikafla við lag úr þjóðlagasafni Bjarna Þorsteinssonar árið 1960 og setti það við lausavísur sem eignaðar voru Vatnsenda-Rósu og kallaði Vísur Vatnsenda-Rósu. Lagið varð mjög vinsælt og þekkt í þessari útgáfu. Jóni þótti á höfundarétti sínum brotið þegar lagið var kallað „íslenskt þjóðlag“ og útsetning eignuð öðrum í síðari útgáfum, meðal annars þar sem lagið var notað í kvikmyndinni Tár úr steini árið 1996. Úrskurðarnefnd á vegum STEFs úrskurðaði að Jón ætti stærstan hluta lagsins þótt það byggði á þjóðlagi. Jóni þótti STEF síðan sýna sér lítinn stuðning í málarekstri út af notkun lagsins og sagði sig því úr félaginu.
Jón fékk riddarakross Hinnar íslensku Fálkaorðu árið 2001 fyrir „störf í þágu lista og menningar.”
Söngkeppnin VOX DOMINI
Félag íslenskra söngkennara - FÍS
fisis@fisis.is