Spurt og svarað
-
-
Stór hluti af fyrstu skrefum söngvara er að taka þátt í keppnum og syngja fyrir umboðsmenn og óperuhús. Það þarfnast mikils undirbúnings bæði tónlistarlega og andlega og er keppni sem þessi ætluð til að hjálpa söngvurum að finna hvað í því felst að vera söngvari.
Þú færð líka tækifæri til að vinna með færustu píanóleikurum landsins og koma fram í einum besta tónleikasal landsins.
-
Það er mjög misjafnt eftir fólki hvernig undirbúningur hentar best. En lykilatriðin eru þessi:
Kynntu þér reglurnar vel
Byrjaðu strax á að skrifa niður og þýða alla texta
Ef lagið er á íslensku, vertu þá alveg viss um hvað textinn þýðir
Vertu búin/n að læra allt utanbókar vel fyrir keppnina, það er einn stærsti þátturinn í að draga úr stressi
Farðu yfir öll lög með píanóleikaranum þínum og söngkennara
Fylgstu vel með fréttum á Facebooksíðu keppninnar
Andlegur undirbúningur er einnig mikilvægur:
Taktu þér tíma og lokaðu augunum og sjáðu fyrir þér hversu skemmtilegt og gefandi þetta verður
Andaðu djúpt og farðu yfir allan flutninginn í huganum, reyndu að sjá hann fyrir þér eins lifandi og hægt er.
-
Næsta keppni verður haldin 14. og 15. mars 2026.
Keppnin var upphaflega haldin árlega en ákveðið var að breyta fyrirkomulaginu í annaðhvert ár. Reikna má með að keppnin fari framvegis fram á sléttum tölum (2026, 2028, 2030 osfrv)
Fylgist vel með á Facebooksíðu keppninnar
-
Það kostar 10.000 kr. á hvern þátttakanda að taka þátt í ár.
Innheimt er þátttökugjald en uppæðin er ákveðið fyrir hverja keppni, og er ætlað að standa straum af kostnaði við æfingar keppenda með píanóleikurum keppninnar. Reynt er að hafa halda allri gjaldtöku í lágmarki.
Annar kostnaður við keppnina er greiddur af Félagi íslenkskra söngkennara.
-
Undanfarin ár hefur félagið kappkostað að hafa alla vinninga í formi upplifana, svo sem eins og tónleikahald, þátttaka í masterklass, miðar á listviðburði og sýningar.
Auk nafnbótarinnar fyrir fyrsta sæti keppninnar sem er “Rödd ársins”. -
Dómnefnd keppninnar er ávallt skipuð reynslumiklu tónlistarfólki sem hefur mikla þekkingu á bæði á klassískum söng og sviðslistum klassískrar tónlistar. Formaður FÍS er formaður dómnefndar.